Hlustendaverðlaun Bylgjunnar, Xins 977 og FM957 í Gamlabíó 21. mars.
Á hátíðinni verða tilkynntir sigurvegarar í 8 flokkum sem kosið erum á Vísir.is. Það eru íslenskir tónlistarunnendur og útvarpshlustendur sem velja það tónlistarfólk sem þau vilja verðlauna fyrir tónlist á síðastliðnu ári.
Alvöru tónlistarveisla verður á verðlaunahátíðinni og er lineup-ið svakalegt.
Fram koma:
Stjórnin
Hipsumhaps
Diljá
Mugison
Prettyboitjokko
Auddi og Steindi
GDRN
Magni
Herra Hnetusmjör
XXX Rottweiler hundar
ATH að það er 18 ára aldurstakmark á viðburðinn.
Uppselt er á viðburðinn en hægt verður að fylgjast með partýinu í beinu streymi á Vísi.is og í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi.