Um viðburðinn
Kæru
vinir að sjálfsögðu get ég ekki annað en haldið auka tónleika. Þeir verð klukkan
23.00 föstudaginn 10 maí. Miðasala á þá mun hefjast klukkan 10
laugardaginn 10. febrúar.
Hvar á ég að byrja?
Fyrir 10 árum sat ég inni í herbergi með USB míkrafón og fartölvu. Ég tók beat
af netinu og rappaði yfir það, tók það upp og setti á youtube.
Unglingar í
Kópavogi voru fyrst til að kveikja, en smátt saman barst orðið út að strákur
sem kallaði sig Herra Hnetusmjör væri bjartasta von íslensks rapps.
Tíminn
leið, ég gerði fleiri lög, kynntist fólki á sömu bylgjulengd og ég. Joe
Frazier, Egill Spegill. Ég hætti í skóla, lagði allt undir, varð stærri með
hverju laginu sem ég setti út. Ég náði flugi og klessti á vegg. Náði sönsum og
hélt áfram sterkari en áður.
10 ár. 6 plötur, tæplega 100 lög, nokkur verðlaun,
1 bók, tugir milljóna hlustana. 10 ár. Ég býð í veislu.
Ég mun taka mín
uppáhalds lög frá öllum stundum ferilsins. Lög sem 17 ára strákur í ástandi samdi.
Lög sem 27 ára atvinnumaður samdi. Lög sem einn efnilegasti rappari landsins
samdi. Lög sem einn vinsælasti tónlistarmaður Íslands samdi.
Ég hlakka til að
sjá ykkur Og ég tek allt gengið með
Kópavogskveðja Herra Hnetusmjör
Tónleikar
í boði Red Bull, Polo, Dominos og Símans
Vinsamlega athugið að þetta eru standandi tónleikar
Aldurstakmark 18 ár