Tix.is

Um viðburðinn

"Reykjavík Cocktail Weekend Expo er stærsta kokteila og vínsýning landsins þar sem allir helstu vínbirgjar Íslands verða með kynningar á sínum vörum. Samhliða því fer fram Íslandsmeistaramót barþjóna þar sem leitin af besta barþjóni landsins hefst. Húsið opnar klukkan 17:00 og hefst keppni kl. 18:00 og er opið öllum þeim sem hafa áhuga á vínmenningu og kokteilum. Innifalið í miðaverðinu eru 10 drykkjamiðar. Kacper Smarz, tvöfaldur heimsmeistari í ,,flair'' barþjónamennsku kemur til landsins til að vera með sýningu á viðburðinum. Einnig fá allir gestir möguleika á að kjósa um kokteilbar ársins. Þetta er kvöld sem þú vilt ekki missa af!

Helstu samstarfsaðilar Reykjavík Cocktail Weekend 2024 sem verða með kynningu á allskonar góðgæti í fljótandi formi á meðan viðburðinum stendur eru:

  • Mekka Wines & Spirits
  • Coca Cola European Partners
  • Rolf Johansen & Co.
  • Ölgerðin Egill Skallagrímsson
  • Globus
  • OG Natura
  • Innnes
  • Samtök Íslenskra Eimingarhúsa
  • Expert
  • Alvín

Reykjavík Cocktail Weekend er stærsta kokteilahátíð landsins sem er haldin 3. – 7. Apríl!
Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyrir þessari árlegu hátíð í samstarfi við alla helstu vínbirgja, veitingahús og bari Reykjavíkur.

Hlökkum til að sjá ykkur !''