Tix.is

  • 07. jún. - kl. 20:00
  • 08. jún. - kl. 20:00
Miðaverð:6.500 - 12.500 kr.
Um viðburðinn

Á síðasta Airwaves kom ég fram með 10 manna draumahljómsveit - spilaði með öllu mínu besta fólki og nú er ég búinn að ná að plata þau til þess að sprella með mér í Háskólabíó. Hér er linkur á sýnishorn frá Airwaves:
https://www.youtube.com/watch?v=btSCFTGiEmc

Hljómsveitina skipa:
Gömlu góðu MúkkaRokkararnir sem spiluðu með mér á Hagléls tímabilinu.
-Arnar Gíslasson: trommur
-Guðni Finnson: bassi
-Þorbjörn Sigurðsson: hljómborð og gítar
-Rósa Guðrún Sveinsdóttir: saxafónn og þverflauta
-Pétur Ben: gítar

Strengir, Brass og Slagverk
-Þórdís Gerður Jónsdóttir: selló
-Sigrún Harðardóttir: fiðla
-Óskar Guðjónsson: saxafónn
-Einn fiðlu-og básúnumeistari sem er ekki búið
 að staðfesta ennþá :-)
-Kristofer Rodriguez Svönuson: slagverk og trommur

Þetta verður algjör HamborgaraPulsuPizzu veisla - ég hef spilað alltof sjaldan með hljómsveit í seinni tíð! Fyrir utan Airwaves þá held ég að ég hafi ekki spilað með gamla MúkkaRokk-bandinu síðan 2016 eða 2017.. é minn eini! Og svo að bæta við Strengjum, Brassi og Slagverki - úff - Ég iða allur af spenningi - get í alvöru ekki beðið! Hitta ykkur og spila með þeim, það verður ekki betra.

Mana þig af öllu hjarta til að koma og kveðja veturinn - fagna sumrinu og kokka upp stemmingu aldarinnar með okkur í Hásklólabíó. Allir upp á dekk!
Stuðkveðja, Mugison.