Tix.is

Sölu á viðburðinn er lokið
Um viðburðinn

Hinn ótrúlegi grínisti, tónlistamaður, leikari og rithöfundur Reggie Watts sækir Ísland heim á ný! Hann kom síðast til landsins 2010 en mikið hefur gerst síðan og er hann ein skærasta grínstjarna heims þar sem hann blandar saman tónlist og uppistandi á einstakan hátt. Hér er einstakt tækifæri til að sjá þennan ótrúlega skemmtikraft í miklu návígi á besta bar landsins, Vagninum á Flateyri.


Reggie kemur fram:

25. apríl í Samkomuhúsinu á Akureyri

26. apríl í Gamla bíó, Reykjavík

3. maí á Vagninum, Flateyri


Reggie Watts er hvað frægastur fyrir að hafa verið hljómsveitarstjórinn í The Late Late Show with James Corden. Hann var einnig DJinn á Emmy-hátíðinni 2020.


Netflix-þátturinn hans, Spatial fékk rífandi góða dóma og New York times kallaði hann „rússíbana af vitleysu og veruleikaflótta" og sögðu Reggie vera „áhrifamesta absúrdistann í grínheiminum."


Reggie Watts hefur komið fram á ýmsum hátíðum svo sem Bonnaroo, SXSW, Bumbershoot, Just for Laughs og Pemberton.


Reggie Watts er einstakur grínisti, þar sem allt grín og tónlist er spunnið á staðnum. Búið ykkur undir algjörlega einstaka og ógleymanlega kvöldstund.


Sýningin er 90 mínútur, ekkert hlé.