Tix.is

Um viðburðinn

Hinn ótrúlegi grínisti, tónlistarmaður, leikari og rithöfundur Reggie Watts sækir Ísland heim á ný! Hann kom síðast til landsins 2010 en mikið hefur gerst síðan. Í dag er hann ein skærasta grínstjarna heims. Reggie Watts blandar saman saman tónlist og uppistandi á einstakan hátt.  Húsið er opnað kl. 20:00 og sér DJ Atli Kanill um að keyra upp stuðið auk kabarett-karnivals. Reggie stígur svo á svið kl. 21. 

Reggie Watts er hvað frægastur fyrir að vera hljómsveitarstjórinn í The Late Late Show with James Corden. Hann var einnig DJinn á Emmy-hátíðinni 2020. 

Netflix-þátturinn hans, Spatial fékk rífandi góða dóma og New York times kallaði hann „rússíbana af vitleysu og veruleikaflótta" og sögðu Reggie vera „áhrifamesta absúrdistann í grínheiminum."

Reggie Watts hefur komið fram á ýmsum hátíðum svo sem Bonnaroo, SXSW, Bumbershoot, Just for Laughs og Pemberton.

Reggie Watts er einstakur grínisti, þar sem allt grín og tónlist er spunnið á staðnum. Búið ykkur undir ógleymanlega kvöldstund. 

Reggie kemur fram:

25. apríl í Samkomuhúsinu á Akureyri

26. apríl í Gamla bíó, Reykjavík

3. maí á Vagninum, Flateyri