Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Nýdönsk stígur á Sviðið hið fyrsta sinn með fulla tösku af lögum sem hafa glatt mann og annan í áratugi.

Ekki er ýkja langt síðan sveitin tróð upp á Kótelettunni við góðar viðtökur og því líklegt að sjálfstraustið sé mjög viðunandi.

Lög eins og Fram á nótt, Horfðu til himins, Nostradamus, Flugvélar og Alelda eru nú þegar komin á lagalistann sem á bara eftir að lengjast fram í mars 2024.

Hljómsveitina skipa þeir Björn Jr. Friðbjörnsson ,Daníel Ágúst Haraldsson, Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm.

Sérlegir aðstoðarmenn eru þeir Ingi Skúlason og Guðmundur Pétursson.


Sviðið Selfossi