Tix.is

Um viðburðinn

Ein virtasta og þekktasta djass-fusionhljómsveit veraldar, fimmfalda grammyverðlaunasveitin SNARKY PUPPY er á leiðinni tilbaka til landsins og heldur, án efa, eina umtöluðustu og flottustu tónleika síðustu ára á sviði fusion og djass.

Grammyverðlaunahafinn, bassaleikarinn, hljómsveitastjórinn og stofnandi Snarky Puppy, Michael League hefur á síðustu árum safnað að sér myndarlegum hópi ótrúlega hæfileikaríkum tónlistarmönnum á sviði jasstónlistar. Og nú mæta þeir á klakann þann 22. apríl og halda tónleika í Eldbogarsal Hörpu. Þetta verður djassviðburður ársins á Íslandi.

Snarky Puppy hélt tónleika í Eldborg árið 2016 og fékk frábæra dóma.

Þessir mæta í Eldborg
Michael League
Nate Werth
Bob Lanzetti
Larnell Lewis
Justin Stanton
Bobby Sparks
Maz Maher
Chris Bullock
Jay Jennings

Svavar Knútur hitar upp