Tix.is

Um viðburðinn

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.

Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og eitt ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir víóluleikarar og Sigurður Haldórsson sellóleikari. Á dagskránni eru tvö glæsileg kammerverk eftir Mozart en það eru Kvartett fyrir klarinettu og strengi í B Dúr kv. 378 og Kvintett fyrir strengi í B Dúr kv. 174.

Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.

Tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudagskvöldið 19. Des, í Kópavogskirkju miðvikudagskvöldið 20. desember, í Garðakirkju fimmtudagskvöldið 21. des og í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudagskvöldið 22. des. Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00. Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 2500 fyrir nemendur, öryrkja og eldri borgara og frítt inn fyrir börn.  Miðasala við innganginn og á Tix.is