Tix.is

Um viðburðinn

Þann 21. október 2022 gaf JóiPé út plötuna Fram í rauðan dauðann. Platan er fyrsta heildstæða verk hans sem sóló artisti en JóiPé er þekktur sem annar helmingur tvíeykisins JóiPé x Króli.

Til að fagna árs afmæli plötunnar verður blásið til útgáfuhófs í Bíó Paradís þann 29. nóvember. Þar verður frumsýnd stuttmynd tileinkuð plötunni þar sem platan er flutt ásamt stórvalaliði tónlistarmanna. Einnig verður platan seld í físísku formi í fyrsta sinn. Takmarkað upplag verður á þeim varningi en um er að ræða USB lykil sem geymir plötuna sjálfa, pælingar og ókláruð lög sem enduðu ekki á plötunni.

Húsið er opið frá kl. 21:00-23:00 og sýning hefst á slaginu 22:00 þann 29. nóvember í Bíó Paradís.