Tix.is

Um viðburðinn

Hátíðarpassi gildir á alla viðburði á Myrkum músíkdögum dagana 24.-28. janúar 2024.

Verð 15000 kr.

Verð fyrir nemendur, aldraða og öryrkja er 8500

Fyrir tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands, 25. janúar, sækja passahafar miða í miðasölu Hörpu.

--------------------------------------------------------------------

Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands, sem vettvangur fyrir íslensk tónskáld til að fá verk sín flutt. Í dag er áhersla hátíðarinnar að flytja og kynna samtímatónlist með áherslu á nýja, íslenska tónlist og flytjendur í bland við erlend verk og erlenda flytjendur.