Tix.is

Um viðburðinn

Ómstríð, ómþýð, fögur, óvænt, rytmísk -
en um fram allt tónlistin okkar.  


Kvennakórinn Vox feminae fagnar 30 ára starfsafmæli með tónleikum í Háteigskirkju laugardaginn 18. nóvember kl. 16.


Í gegnum tíðina hefur Vox feminae lagt metnað sinn í að auka veg kvennakóratónlistar á Íslandi með því að fá íslensk tónskáld til að semja tónverk fyrir kórinn. Á þessu afmælisári mun kórinn frumflytja ný verk eftir tónskáldin Eygló Höskuldsdóttir Viborg og Stefan Sand, stjórnanda kórsins.  


Á tónleikunum verða einnig flutt nokkur eldri verk eftir John Speight, Báru Grímsdóttur og Svanfríði Hlín Gunnarsdóttur, öll samin og útsett fyrir kórinn.


Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað fyrrum kórstjóri Vox feminae syngur einsöng með kórnum.