Tix.is

Um viðburðinn

Silva & Steini heita fullu nafni Silva Þórðardóttir og Steingrímur Teague. Báðum finnst þeim gaman að syngja jólalög, sérstaklega jólalög sem liggja mátulega djúpt ofan í nótnaskúffunni.

Nú ætla Silva & Steini að halda tónleika 6. desember kl. 20:30 og 15. desember kl. 18:00 á efri hæð Röntgen. Þar ætla þau að máta sig við alls konar jólalög, sem sum enda líklega á væntanlegri jólaplötu, og sum ekki.

Með þeim verða trommuleikarinn Magnús Trygvason Eliassen og bassaleikarinn Birgir Steinn Theodórsson.


Tónleikarnir eru sitjandi