Tix.is

Um viðburðinn

Páll Óskar Hjálmtýsson og Kristín Stefánsdóttir munu blása til stórtónleika klassísku poppmeistaranna ásamt einvala liði fremstu tónlistarmanna landsins; blásara- og strengjasveitar. Dusty Springfield, The Beatles, Carpenters, Dionne Warwick, Aretha Franklin, Beach Boys ásamt fleirum verða gerð skil á þessum glæsilega viðburði.

Pál Óskar þarf ekki að kynna, enda er hann einn ástsælasti tónlistarmaður landsins. Hann er mikill aðdáandi klassíska poppsins og hefur sungið og haldið fjölda tónleika með lögum meistaranna og hefur algjöra sérstöðu hvað það varðar.

Kristín er sömuleiðis mikill aðdáandi þessarar tónlistar og hefur haldið nokkra stóra og glæsilega tónleika við góðar undirtektir. Hún hefur haldið tónleika með lögum Burt Bacharach og Carpenters og einnig tónleika með lögum Noruh Jones.

Hér á eftir er glæsileg umfjöllun gagnrýnandans Jónasar Sen á tónleikunum í september 2023 í Salnum í Kópavogi: umfjöllun

Páll Óskar Hjálmtýsson, söngur
Kristín Stefánsdóttir, söngur
 
Raddir:
Elísabet Ólafsdóttir
Gísli Magna Sigríðarson
Gógó
 
Hljómsveit:
Hlynur Þór Agnarsson, píanó, hljómsveitarstjórn, raddir og útsetningar
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Róbert Þórhallsson, bassi
Erik Qvick, trommur
 
Blásarasveit:
Snorri Sigurðarson, trompet
Samúel Jón Samúelsson, básúna
Haukur Gröndal, altosaxófónn, flauta, klarinett
Björgvin Ragnar Hjálmarsson, tenórsaxófónn
Rósa Guðrún Sveinsdóttir, baritónsaxófónn, flauta, raddir

Strengjasveit:
Matthías Stefánsson, fiðla
Sigrún Harðardóttir, fiðla
Karl James Pestka, víóla
Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló


Jesper Pedersen, þeramín
Ingvar Jónsson, hljóðmaður
G.Orri Rósenkranz, ljósamaður
Viktor Hólm Jónmundsson, sviðsmaður

Missið ekki af þessum einstaka viðburði; miðasala á tix.is