Laugardaginn 18. nóvember verður þakkargjörðarhátíð Félags Fulbright-styrkþega á Íslandi haldin í hátíðarsal Gróttu að Suðurströnd 8 á Seltjarnarnesi.
Innifalið í miðaverði:
· Þriggja rétta þakkargjörðarhlaðborð að bandarískum sið.
· Einn miði í happdrætti FFSÍ.
Happdrættismiðar verða einnig til sölu á staðnum sem hluti af fjáröfluninni. Hátíðin er þekkt fyrir einstaklega glæsilega vinninga og munum við tilkynna þá á næstunni.
Allur ágóði rennur til Fulbright-styrkja fyrir íslenska námsmenn.
Þar sem drykkir eru ekki seldir á staðnum er gestum boðið að hafa drykki meðferðis.
Hægt er að óska eftir vegan valmöguleika við miðakaup en slíkar óskir þurfa að berast minnst 5 dögum fyrir viðburð. Vegan valmöguleikinn er dýrindis hnetusteik.
Þessi árlegi viðburður á til að seljast upp svo við hvetjum fólk til að kaupa miða sem fyrst!
Öll velkomin, óháð tengslum við Fulbright eða Bandaríkin.