Tix.is

Um viðburðinn

Bangsímon og Gríslingur í jólasveinaleit er frumsamið verk eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur.

Verkið byggir á þeim ástsælu Bangsímon og Gríslingi eftir A.A.Milne, sem Disney gerðu svo ódauðlega, og blandast saman við klassískar Íslenskar verur sem allir þekkja.


Bangsímon og Gríslingur eru komnir allaleið til Íslands til þess að finna Íslensku jólasveinana, þeir höfðu frétt af því að á Íslandi væru hvorki meira né minna en 13 jólasveinar.

Þegar sagan hefst þá eru þeir staddir í kofa á Íslandi og ætla að leggja af stað uppá fjall til þess að vita hvort þeir geti ekki fengið að hitta þá.

Ferðin gengur upp og ofan hjá þeim, en þeir hitta hinar ýmsu verur á leiðinni, eins og við er að búast uppá Íslensku fjalli.

Þeir halda þó ótrauðir áfram og reyna eftir fremsta megni að halda í trúnna á það að þeim takist ætlunarverk sitt og með óbilandi trú á sjálfan sig sem og á hvorn annann.


Tónlistin í verkinu er frumsamin af Eiríki Bóassyni og er hún létt og skemmtileg með bæði frumsömdum textum sem og vísum frá Jóhannesi úr Kötlum.


Leikstjórn er í höndum Jóhönnu S. Ingólfsdóttur en er þetta í annað sinn sem hún leikstýrir stuttu barnaverki hjá Freyvangsleikhúsinu en hún leikstýrði einnig Karíus og Baktus fyrir jólin í fyrra.


Verkið er einungis rúmur klukkutími að lengd, með hléi, og er því tilvalið fyrir yngstu kynslóðina.