Tix.is

Um viðburðinn

Nú er komið að því!!!

Fjórir fræknir organistar leika í Víðistaðakirkju

Miðvikudagskvöldið 25. október kl. 20:00 bjóða organistarnir Arnór Vilbergsson, Jón Bjarnason, Sveinn Arnar Sæmundsson og Viðar Guðmundsson uppá tónleika í Víðistaðakirkju.

Nistarnir gefa tónleikagestum innsýn í töfraveröld orgels og flytja óhefðbundna orgeltónlist við dægurlög og kvikmyndatónlist. Þá taka þeir upp fleiri hljóðfæri eftir sem líður á tónleikana.
Nistarnir eru líka syngjandi organistar og stíga því á stokk og taka saman nokkur lög. Sérstakur heiðursgestur á tónleikunum er Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkusnillingur. 

Jón Þorsteinn Reynisson harmonikuleikari stundaði nám við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn þar sem hann lauk bakkalár- og meistaragráðu í tónlist. Hann hefur tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum, hvort heldur sem er í nútímatónlist, klassískri tónlist, tangótónlist eða öðrum tónlistarstefnum, og starfar nú sem tónlistarmaður og tónlistarkennari við Tónlistarskóla Eyjafjarðar og Tónlistarskóla Húsavíkur.  

Tónleikarnir eru fyrir alla aldurshópa og eru mjög fjölbreyttir og er næsta víst að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.

Einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn. Aðgangseyrir er 2500 krónur greitt við innganginn. 

Venjan hefur verið að þessir stórskemmtilegu viðburðir Nistanna séu gjaldfrjálsir en nú er verið að safna fyrir gæða Steinway flygli í Skálholtsdómkirkju og rennur aðgangseyriririnn beint í þau kaup. Fyrir fjársterka aðila og fyrirtæki er velkomið að gefa frjáls framlög til þessa verðuga verkefnis sem mun efla menningarlíf sunnlendinga sem og annarra íslendinga til muna.