Tix.is

Um viðburðinn

Fertugustu og fimmtu jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldnir í Langholtskirkju
dagana 16. og 17. desember næstkomandi. Jólasöngvarnir eru ómissandi liður í hátíðahaldi
margra og að vanda verður boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur í hléi.

Fram koma Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili undir
stjórn Magnúsar Ragnarssonar og Sunnu Karenar Einarsdóttur. Einsöngvari að þessu sinni
verður Jóna G. Kolbrúnardóttir, en auk hennar koma fram einsöngvarar úr báðum kórum.

Hljómsveitina skipa:
Melkorka Ólafsdóttir, flauta
Richard Korn, kontrabassi
Frank Aarnink, slagverk

Almennt miðaverð er 4.900 kr., en 3.500 kr. fyrir öryrkja, eldri borgara og námsmenn, og
1.500 kr. fyrir 16 ára og yngri.