Tix.is

Um viðburðinn

Lacuna er líkams hryllingur og sjálfssaga sem byggir á draugalegum minningum og
lifaðri reynslu. Verkið myndar galdra þulu úr bæði orðum og tónlist. „Lacuna“ þýðir op
eða bil. Fyrir Ala-Ruona hefur þessi merking orðsins tvöfalda túlkun. Hún er bæði
draugur - snýkjudýrsleg minning um líkama hans fyrir leiðréttingu - en að sama skapi er
hún dásamlegt tóm án áfalla. Myndir og reynslur úr fortíðinni eru særðar upp á sviðinu í
gegnum látbragð, orð, öskur og opnar þannig yfirskilvitlegt hlið inn í líkama
listamannsins. Gestum er boðið að ganga í gegnum hliðið, inn í holdlega alsælu.

Teo Ala- Ruona (f. 1990) er finnskur gjörninga listamaður sem leggur áherslu á
getskáldskap í formi gjörninga sem sameinar æfingar í líkamlegum skáldskap, hreyfingu
og ýmiskonar raddbeitingu. Hann kannar þemu eins og kynlíf, hinsegin vistfræði,
eiturhrif, kyn og kyngervi.

Listahátíðin Sequences verður haldin í ellefta skipti dagana 13-22 október í Reykjavík.
Yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni er „Get ekki séð“ (e. Can’t See) . Sequences mun
leiða saman listamenn og sýningagesti á árstíðaskiptum, þegar daginn tekur að stytta, og
þjóna sem vettvangur orku- og skoðanaskipta með dagskrá sem inniheldur sýningar,
gjörninga, fyrirlestra, gönguferðir, leiðsagnir og fleira.