Tix.is

Um viðburðinn

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna sýnir barna- og fjölskylduleikritið Rúi og Stúi eftir Skúla Rúnar Hilmarsson og Örn Alexandersson með nýrri tónlist eftir Stefán Þorleifsson og í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar.

Allt er í sóma í sveitarfélaginu þar sem Rúi og Stúi búa. Þeir félagarnir sjá til þess að íbúarnir þurfa ekki að erfiða eða hafa áhyggjur af daglegu amstri og eru uppfinningasamir og sniðugir. Sveitarstjórinn stýrir af röggsemi með sinn trygga aðstoðarmann Bergstein sér við hlið. Allt er einfalt og gott þar til daginn sem allt byrjar að fara úrskeiðis.