Tix.is

Um viðburðinn

Dagsetning: 10. október

Tími: 15:00–16:00

Staður: Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík

 Við hefjum starfsárið af krafti og ræðum um áhrif gervigreindar á markaðsmál og sköpun.

 Gervigreind er orðin hluti af daglegum störfum í markaðsmálum, en hvar hjálpar gervigreindin og hvar er hún hindrun? Hvaða áhrif hefur gervigreind á sköpun? Hvaða áhrif hefur gervigreind á störf í markaðsmálum?

 Við fáum til okkar aðila sem miðla reynslu sinni af notkun gervigreindar í markaðsmálum og tökum samtalið áfram í pallborðsumræðum með sérfræðingum.

 Dagskrá:

 Upphafserindi

 Brynjólfur Borgar Jónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri DataLab

 Brynjólfur dregur gervigreindina niður úr skýjunum og reynir að svara nokkrum grundvallarspurningum.

 Hvaðan kemur hún og hvert er hún er að fara? Hvað gæti gerst á næstu árum? Hver gætu áhrifin orðið á markaðssetningu og störf fólks í faginu?

 

 Örerindi

 Flutt verða þrjú örerindi þar sem farið verður yfir hagnýt dæmi þar sem gervigreind hefur nýst vel í markaðsstarfi.

 Björg Ingadóttir

Fatahönnuður, kennari og framkvæmdastjóri Spaksmannsspjara

 Lára Hrafnsdóttir

VP of Marketing hjá Lucinity

 Rósa Hrund Kristjánsdóttir

Hugmynda- og hönnunarstjóri hjá Hvíta húsinu


Pallborð

 Leitast verður við að svara spurningum varðandi hlutverk og áhrif gervigreindar á markaðsmál og sköpun. Við fáum til okkar sérfræðinga í bransanum sem sitja fyrir svörum.

 Arnar Halldórsson

Sköpunarstjóri, strategía hjá Brandenburg

 Brynjólfur Borgar Jónsson

Stofnandi og framkvæmdastjóri DataLab

 Guðmundur Jóhannsson

Samskiptastjóri Símans og umsjónarmaður Tæknihornsins í Morgunútvarpi Rásar 2

 Hanna Kristín Skaftadóttir

Fagstjóri viðskiptagreindar hjá Háskólanum á Bifröst

 

 Fundarstjóri/umræðustjóri í pallborði

 Eyrún Magnúsdóttir

Eyrún hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum. Undanfarið hefur hún unnið að hlaðvarpsþáttum um gervigreind fyrir RÚV og því kynnt sér efnið ítarlega.