Tix.is

Um viðburðinn

Stórtónleikar Fjörgynjar – stuðningur við BUGL og Umhyggju

Þetta er í 19 skiptið sem Lionsklúbburinn Fjörgyn stendur fyrir
tónleikum til styrktar verkefna líknarsjóðs Fjörgynjar.

Fyrstu styrktartónleikar Fjörgynjar voru haldnir árið 2003 og á hverju
ári síðan hefur fjöldi landskunnra tónlistarmanna ávallt gefið vinnu sína
til verkefnisins.

Nú í ár munu eftirfarandi tónlistarfólk koma fram:
Karlakórinn Fóstbræður (Árni Harðarson stjórnar),
Baggalútur,
Rebekka Blöndal,
Gréta Salome,
Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen,
Systurnar og Ellen
Helgi Björnsson,
Gissur Páll Gissurarson og Dísella Lárusdóttir,
Geir Ólafsson,
Emmsjé Gauti,
Guðrún Árný Karlsdóttir.
Undirleikarar: Lára Bryndís Eggertsdóttir, Matthías Stefánsson og
Andrés Þór Gunnlaugsson

Fjörgyn leggur ríka áherslu á að beita sér fyrir velferð barna og
unglinga. Í gegnum tíðina hefur klúbburinn stutt margvísleg verkefni,
fyrir samtals um 150 milljónir á núvirði. M.a. hefur Fjörgyn fyrst og
fremst stutt við Barnaspítala Hringsins og Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans (BUGL). Fjölmargir aðrir aðilar hafa einnig notið
stuðnings frá klúbbnum, m.a. Ungmennafélagið Fjölnir, Ljósið,
Skátafélagið Vogabúar, Stuðlar, Sólheimar, SPOEX, Umhyggja o.fl.

Mörg undanfarin ár hefur Fjörgyn einnig gefið veglegar matargjafir eða
innkaupakort til þurfandi fjölskyldna í Grafarvogi í samstarfi við
Grafarvogkirkju og Íslensku Kristskirkjuna.

Án stuðnings fjölmargra aðila þar á meðal ykkar