Tix.is

Um viðburðinn

- Styrktartónleikar í Iðnó 11. október  

Um viðburðinn

Til heiðurs Hálendinu kynnum við dásamlega tónlistarveislu. Listamennirnir sem fram koma eru GDRN, Celebs, Lón og Kári. 

Ljósmyndir Chris Burkard af Hálendi Íslands verða til sýnis.

Ræðumenn:
Benedikt Traustason formaður Landvarðafélags Íslands
Ósk Vilhjálmsdóttir og Ásta Arnardóttir leiðsögumenn


Kynnir: Villi Netó 

Hálendishátíðin verður í Iðnó 11. október kl. 20.00. Húsið verður opnað kl. 19:00.

Miðaverð er kr. 4.990 og aðeins 300 miðar í boði.    

Hálendið er dásamlegt en á í vök að verjast 

Hálendi Íslands er einstök perla á heimsvísu, hvernig sem á það er litið. Við eigum villtustu víðerni í heimi, við eigum gljúfur og gíga, frussandi fossa og við eigum eldhraun, við eigum drynjandi jökulár og við eigum kyrrð, við eigum grjótharða jökla og bullandi hveri, við eigum eyðimerkur og við eigum safaríkar gróðurvinjar á ólíklegustu stöðum.   

Með tónleikunum viljum við vekja athygli á dásemdum Hálendisins – en líka benda á þær ógnir er að því steðja. Við viljum auka skilning og þekkingu á Hálendinu en jafnframt að hvetja alla til að standa að baki Landvernd og styðja samtökin í því að vera málsvari náttúrunnar, sem ekki getur varið sig sjálf.  

Við viljum ekki fleiri virkjanir á Hálendinu, ekki fleiri uppbyggða vegi, hótel eða háspennulínur á Hálendinu, sem er í raun hjarta landsins.   

Til styrktar Hálendinu 

Hálendishátíðin er styrktartónleikar, þar sem ágóðanum verður varið í baráttu fyrir Hálendi Íslands svo við öll og komandi kynslóðir geti notið dásemda þess.    

Í ósnortinni náttúru gefst færi á einstakri upplifun og gleði. Ef þú hefur ekki upplifað Hálendi Íslands skaltu reima á þig skóna og skella þér þangað við fyrsta tækifæri!