Tix.is

Um viðburðinn

Íslenska karlalandsliðið heimsækir Portúgal þann 19.nóvember næstkomandi í undankeppni EM 2024. Leikurinn fer fram á Estádio José Alvalade í Lissabon og hefst kl.20:45 að staðartíma. Knattspyrnusamband Íslands og Tix standa fyrir miðasölu fyrir stuðningsmenn Íslands. Miðasöluferlið er þannig að þeir sem ganga frá kaupum á miða hér á Tix fá kvittun fyrir kaupunum og fá svo sendan miða frá Knattspyrnusambandi Íslands þegar nær dregur leiknum. 

Sjáumst í Portúgal, áfram Ísland!