Tix.is

Um viðburðinn

Búðu þig undir ógleymanleg Jól í Eldborg.
Þökkum frábærar viðtökur. Aukatónleikar komnir í sölu!

Stórsöngkonurnar Hera Björk og Margrét Eir munu flytja helstu jólaperlur Frostrósa á einstökum jólatónleikum.

Þær Heru og Margréti þarf vart að kynna. Þær hafa verið vinkonur í yfir 30 ár og voru þær söngkonur sem oftast heiðruðu svið Frostrósa. Þær ætla á ný að töfra fram einstök augnablik er þær leiða viðstadda inn í fallegan jólaheim.

Öll umgjörð verður hin glæsilegasta og með þeim verða á sviði einvala hljómsveit, strengjasveit, frábærir kórar og góðir gestir. Má þar nefna þau Dísellu Lárusdóttur Grammy verðlaunahafa og Ara Ólafsson sem er án vafa einn efnilegasti söngvari þjóðarinnar.

Dísella kom fram með Frostrósum árin 2008 og 2011 þar sem hún skapaði ógleymanlegt augnablik er hún flutti dúett með Garðari Thór Cortes beint frá New York.

Ari Ólafsson var gestur á Frostrósir Klassík 2011 ungur að árum og söng þar dúett með engri annari en Sissel Kirkjebø.

Flestir Íslendingar þekkja Frostrósatónleikana sem haldnir voru ár hvert í 12 ár samfleytt frá 2002-1013. Yfir 30.000 manns sóttu tónleikana árlega þegar mest var og eiga margir þaðan ljúfar minningar. Lögin lifa áfram og hvert mannsbarn þekkir lög eins og Dansaðu vindur, Hungurinn fer hærra og Af álfum svo nokkur séu nefnd.
Í ár eru 10 ár frá lokatónleikunum og því við hæfi að þær Hera og Margrét rifji upp eftirlætis lögin og bjóði tónleikagestum í dásamlegt ferðalag í tónum og leiði viðstadda í sanna jólastemningu.
Sjáumst í Eldborg 8. desember.