Tix.is

Um viðburðinn

Gyða Valtýsdóttir mun dáleiða okkur með töfrandi tónum, sellóleik og söng á þessum einstöku tónleikum á kaffi Flóru. Ævintýraleg kvöldstund umvafin plöntum, kertaljósi, haustilmi og tónlist sem hreyfir við innstu hjarta strengjum.

Gyða hefur komið víða við á tónlistaferlinum. Hún hlaut tónlistarverðlaun norðurlandaráðs árið 2019 fyrir tónlistarflutning “þar sem sköpunarkrafturinn brýst fram með afgerandi röddu, frumlegum hljóðfæraleik og miklum persónutöfrum”

Ekki missa af þessum einstaka viðburði