Tix.is

Um viðburðinn

Haustið er komið.

Njótum notalegrar kvöldstundar saman í Fríkirkjunni þann 15. september til styrktar Mikaels Smára Evensen, 11 ára drengs sem nýverið greindist með bráðahvítblæði. Mikael berst nú hetjulega við þennan erfiða sjúkdóm, þetta er okkar framlag til þess að styðja við bakið á honum og fjölskyldu hans.

Sóley Stefánsdóttir, Elín Eyþórsdóttir, Silva & Steini, Eydís Evensen, GDRN og LÓN munu flytja hugljúfa tóna fyrir tónleikagesti, en allur ágóði mun renna til styrktarsjóðs Mikaels.

Miðaverð er 4900kr.