Tix.is

Um viðburðinn

Hljómahöll hefur endurvakið tónleikaröðina Trúnó en tónleikaröðin hafði haldið sig til hlés frá því að heimsfaraldurinn skall á. Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við listamennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtónleikum í litlum sal.

Hljómsveitin Valdimar spilaði nýverið tvenna tónleika í tónleikaröðinni en skemmst er frá því að segja að tónleikarnir heppnuðust mjög vel en uppselt var á báða tónleikana.

Sá listamaður sem kemur næst fram í tónleikaröðinni er enginn annar en Emmsjé Gauti!

Gauti Þeyr Másson, betur þekktur undir sviðsnafninu Emmsjé Gauti, er íslenskur tónlistarmaður og rappari sem er öllum landsmönnum kunnugur. Hann gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 2011. Síðan þá hefur hann gefið út hvern smellinn á fætur öðrum. Gauti er þekktur fyrir kraftmikla sviðsframkomu og við erum nokkuð viss um að hann mæti með mikla orku í Hljómahöllina


Emmsjé Gauti hefur gefið út sjö breiðskífur:

  • Bara ég (2011)
  • Þeyr (2013)
  • Vagg & Velta (2016)
  • Sautjándi nóvember (2016)
  • FIMM (2018)
  • Bleikt Ský (2020)
  • MOLD (2021)

Ljóst er að það verður af nógu að taka hjá Emmsjé Gauta þegar hann kemur fram á trúnó í fyrsta sinn í Hljómahöll.

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00.