Tix.is

Um viðburðinn

Í september heldur Hljómfélagið í tónleikaferð til Barcelona þar sem kórinn mun, ásamt kórum hvaðan af úr heiminum, syngja í tónleikahöllinni Palau de la Música Catalana undir stjórn Eric Whitacre. Að þessu tilefni ætlar kórinn að flytja vel valin verk eftir Eric Whitacre ásamt íslenskum og erlendum kórperlum.

Kórinn syngur undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Píanóleikari verður Hrönn Þráinsdóttir.

Miðaverð er 3.900 og rennur ágóði seldra miða í ferðasjóð kórsins.