Tix.is

Um viðburðinn

Velkomin á Vöku, hátíðlega þriggja daga samkomu sem samanstendur af tónlist, dansi,
vinnustofum, og matarveislu.
Á Vöku fléttast fornar hefðir við daginn í dag með sérstakri áherslu á þátttökumenningu. Tími
rímnalagsins, tvísöngsins, vikivakans og rælsins er kominn! Taktu þátt í hefðarvakningu á Vöku -
hátíð sem brúar fortíð og nútíð.
Helgarpassi veitir aðgang að öllum liðum hátíðarinnar á afsláttarverði , þar með eru taldar allar
vinnustofur, en einnig er hægt að kaupa miða á hvern viðburð fyrir sig.

Dagskrá

Föstudagur: Dagur rímnalagsins
Árlega heldur Kvæðamannafélagið Iðunn upp á dag rímnalagsins þann 15. September með
rímnatónleikum og í ár er það í fyrsta sinn hluti af Vöku. Þá er í boði fullur skali af flutningi rímna,
frá hráum, einradda flutningi djúpvitra kvæðamanna yfir í stóra tilraunakennda hljóðaheima.

Laugardagur: vinnustofur, matarveisla og dans!
Á laugardeginum gefst tækifæri til þess að læra að kveða, spila og dansa undir leiðsögn frá
vönum listamönnum og eru vinnustofurnar ókeypis fyrir handhafa hátíðarpassa. Takið höndum
saman við aðra hátíðargesti, lærið eitthvað nýtt og hitið upp sporinn fyrir kvöldið framundan!
Aðalkvöld helgarinnar byrjar á veglegri matarveislu að hætti meistarakokksins Arctic Taiga. með
nýuppskornu grænmeti úr heimahögum sem gerir þennan gómsæta vegan matseðil að
sannkölluðum óði til haustsins.
Eftir matinn verður gólfið rutt og slegið upp með dansi með lifandi tónlist frá húsbandinu Vöku.
Öll eru velkomin á dansgólfið og munu dansstjórar leiða fólk í gegnum hvern dans fyrir sig,
sérstaklega þá dansa sem kenndir voru fyrr um daginn.
Kvöldinu lýkur með dúndrandi balkan stemningu með íslensku ívafi frá Skuggamyndum frá
Býsans.

Sunnudagur: Málþing
Málþing er á lokadeginum sem fjalla mun um fortíð, nútíð og framtíð þjóðlaga á Íslandi og er það
skipulagt í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Kvæðamannafélagið Iðunni og Stofnun

Árna Magnússonar í Eddu, húsi íslenskunnar. Samstarfsaðilarnir koma hver með sína sérstöðu,
sérþekkingu og nálgun að borðinu.
Eftir málþingið hittast langspilsunnendur fyrir opnum dyrum með langspilin sín til þess að bera
þau saman, ræða um hljóðfærin og glamra.
Aðgangur að málþingi er ókeypis og opið öllum.
Fylgist með okkur á Facebook og http://www.vakareykjavik.is