Tix.is

Um viðburðinn

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tónleikarnir eru merkilegir fyrir þær sakir að þetta verður í 39. sinn sem Bubbi stendur fyrir Þorláksmessutónleikum. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.

Þorláksmessutónleikar Bubba verða á eftirtöldum stöðum - 6. desember Hlégarður Mosfellsbæ 7. desember Hotel Selfoss 8. desember Hljómahöll Reykjanesbæ 19. desember Bíóhöllin Akranesi 21. desember Hof Akureyri 23. desember Harpa Reykjavík

Hlökkum til að sjá þig.