Tix.is

Um viðburðinn

Umskiptingar bjóða ykkur velkomin í undraheim Töfrabókanna.

Þegar bókin er opnuð birtist heillandi heimur og sagan lifnar við.

Töfrabækurnar er brúðuleikhús fyrir yngstu kynslóðina.

Sýnt er í leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgárdal á hverjum sunnudegi kl 14:00


Fyrsta sagan er Sagan af Gýpu.

Gýpa er með eindæmum matgráðug og mesta furða að hún hafi ekki verið búin að éta heimilisfólk út á gaddinn. Þegar matinn þrýtur étur hún askinn sinn, karl og kerlingu í kotinu og kúna Kreppilhyrnu. Síðan heldur hún af stað til að leita að meiri mat. Hver skyldi vera svo ólánsamur að verða á vegi hennar?


Eftir sýningar verður hægt að kaupa kaffi og kruðerí, föndra svolítið og jafnvel sjá hvernig hægt er að gera sína eigin útgáfu af Gýpu.


Leikstjóri: Jenný Lára Arnórsdóttir

Leikarar: Jónína Björt Gunnarsdóttir og Margrét Sverrisdóttir

Framleiðsla: Fanney Valsdóttir

Brúðuhönnun: Margrét Sverrisdóttir

Höfundar tónlistar: Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir