Tix.is

Um viðburðinn

Eyþór Ingi mætir í fyrsta sinn í Dalíu Búðardal með sínar bestu hliðar. Hann syngur, spilar á gítar og píanó og spjallar.

Eyþór Ingi hefur komið fram og starfað með fjölda hljómsveita, leikið í söngleikjum og fengist við lagasmíðar. Hann er einnig þekktur fyrir eftirhermur og fíflagang.

Á þessum tónleikum blandar hann þessu saman eins og honum einum er lagið. Þetta verða heimilislegir og persónulegir tónleikar þar sem Eyþór Ingi flytur tónlist sem hefur fylgt honum í gegnum árin og kannski einhverjar „acoustic“ útgáfur af glænýju efni af nýútkominni plötu „Rock Paper Sisters“ fái að fljóta með. Öllu verður þessu blandað.


Tónlist, sögur, hlátur og alveg hellingur af athyglisbresti.

“Jahá ! ADHD hefur aldrei verið skemmtilegra !”


Húsið opnar fyrir tónleikagesti kl. 18:00 – Tónleikar hefjast kl. 20:00