Tix.is

Um viðburðinn

40 ára fiðlusmíðar Hans Jóhannssonar

Ómur aldanna: Afrakstur ævinnar, strengjatónleikar með hljóðfærum Hans Jóhannssonar.

Flutt verða verk eftir Richard Strauss, Maríu Huld Markan og Úlf Hansson. Á tónleikunum gefst einstakt tækifæri til að hlýða á hljóm tuga strengjahljóðfæra sem öll koma úr smiðju sama meistarans. Tónleikarnir marka lok viðburðaraðar og sýningar á ævistarfi Hans Jóhannssonar í Ásmundarsal sem stendur frá 1. til 15. október.