Tix.is

Um viðburðinn

Víkingur R. og Breiðablik mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna föstudaginn 11.ágúst kl.19:00 á Laugardalsvelli 

Víkingur R. hóf leik strax í fyrstu umferð keppninnar. Á leið sinni í úrslitin unnu þær Smára, Augnablik, KR, Selfoss og FH. Breiðablik hóf hins vegar leik í 3.umferð keppninnar og unnu á leið sinni Fram, Þrótt og Stjörnuna.

Víkingur R. er nú í fyrsta sinn í sögu félagsins komið í úrslitaleik Bikarkeppni kvenna en Breiðablik hefur orðið bikarmeistari 13 sinnum. 

Miðaverð á leikinn er 2.000kr fyrir fullorðna og 500kr fyrir 16 ára og yngri. 

Hvetjum alla til þess að mæta á völlinn