Tix.is

Um viðburðinn

Lokakvöld Berjadaga tónlistarhátíðar 2023 verður haldið í Ólafsfjarðarkirkju sunnudaginn 6. ágúst kl. 20:00! Eftirfarandi verður á dagskránni:


Seldir miðar við innganginn

Fyrri hluti kl. 20:00-20:45 Ólafsfjarðarkirkja - Kristjana Arngríms syngur ,,Ástar og tregatóna”

Seinni hluti kl. 21:30 - 22:15 Menningarhúsið Tjarnarborg - Brasilísk sveifla

//


KRISTJANA ARNGRÍMS í kirkjunni


Kristjana Arngrímsdóttir söngur

Ave Kara Sillaots harmónikka


Hin vel þekkta vísnasöngkona Íslands Kristjana Arngrímsdóttir mun flytja blíðukennda dagskrá með Ave Kara á harmónikku. Saman flétta þær tangó og ástarsöngvum inn í þetta lokakvöld Berjadaga. Njótið vel!



Farið yfir í Tjarnarborg

kl. 21:30



BRASILÍSK SVEIFLA - Tjarnarborg kl. 21:30-22:15


Guito Thomas gítar og söngur

Rodrigo Lopes slagverk

Einar Bjartur Egilsson píanó


Guito Thomas og Rodrigo Lopes búa í Fjallabyggð og gleðja nú gesti Berjadaga enn á ný með frábærum tónlistarflutningi. Inn í brasilíska rytma fléttar Einar Bjartur Egilsson píanóleikari tónsmíðum af plötu sinni "Kyrrð" sem kom út árið 2022.

Ólöf Sigursveinsdóttir