Tix.is

Um viðburðinn

ÍSLENSKIR STRENGIR OG ÍSLENSKIR EINLEIKARAR:

Tinna Þorsteinsdóttir píanó
Björg Brjánsdóttir þverflauta
Ármann Helgason klarínett
Ave Kara Sillaots harmonika

Konsertmeistari:
Chrissie Thelma Guðmundsdóttir

Hljómsveitarstjóri:
Ólöf Sigursveinsdóttir

Þeir sem heyra í strengjasveit verða sjaldan ósnortnir! Strengjasveitin Íslenskir strengir var stofnuð árið 2017. Hópurinn kemur í Tjarnarborg og heillar áheyrendur með grípandi tónverkum. Flutt verður Illumine eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Impromptu eftir Sibelius. Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari frumflytur Cantus III fyrir sóló píanó og strengjasveit eftir John Speight. Einnig spilar Björg Brjánsdóttir LUX fyrir sóló þverflautu og strengi eftir Huga Guðmundsson. Hljómsveitarstjóri er Ólöf Sigursveinsdóttir og konsertmeistari kvöldsins er Chrissie Thelma Guðmundsdóttir. Rúsínan í pylsuendandum er tvíleikur Ármanns og Ave Kara Sillaots á harmónikku - en þau slógu í gegn í fyrra á Berjadögum.
Góða skemmtun!


Berjadagar hátíðarpassi kr. 9500

Miði á stakt kvöld: kr. 4500

Frítt fyrir 18 ára og yngri

Dagskrá Berjadaga: www.berjadagar.is