Tix.is

Um viðburðinn

Leikritið And Björk, of course... eftir Þorvald Þorsteinsson er drepfyndinn og hrollvekjandi leiðangur um sjálfsmyndir einstaklinga og þjóðar. Nokkrar ólíkar persónur koma saman á sjálfshjálparnámskeiði til að finna sig, hreinsa til í sálarlífinu og verða betri manneskjur. Í gegnum miskunnarlausa leiki freista þau þess að ná stjórn á lífi sínu, finna tilgang og verða eitthvað annað og meira en vanmáttug og ein úti á ballarhafi. And Björk, of course... er sprenghlægilegt, óviðeigandi og óþægilegt. Verkið var fyrst frumsýnt í Borgarleikhúsinu árið 2002 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og hlaut einróma lof gagnrýnenda.

„Mig langaði til að skrifa leikrit um ástand. Mig var lengi búið að langa til þess en treysti mér aldrei almennilega til þess. Með ástandi á ég við leikrit án eiginlegs söguþráðar. Ekkert eiginlegt upphaf, miðja eða endir. Heldur ástand.“

Þorvaldur Þorsteinsson, Morgunblaðið 07.04 2002

Vinsamlegast athugið að í verkinu er fjallað um margs konar ofbeldi, þ.m.t. kynferðisofbeldi, kynþáttafordóma, einelti, fötlunarfordóma, sjálfsvíg og annað sem getur vakið óþægilegar og erfiðar tilfinningar. Sýningin er ekki við hæfi barna eða viðkvæmra.

Leikarar: Jón Gnarr, Sverrir Þór Sverrisson, Eygló Hilmarsdóttir, Urður Bergsdóttir, Davíð Þór Katrínarson, María Pálsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir
Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson
Leikstjóri: Gréta Kristín Ómarsdóttir
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson
Tónlist: Axel Ingi Árnason og Pétur Karl Heiðarson
Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson