Tix.is

Um viðburðinn

BÍDDU BARA er hlátursprengju - eftir stórstjörnurnar Björk Jakobsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Selmu Björnsdóttur sem leiða nú saman hryssur sínar í fyrsta sinn. Þetta  einlæga, beitta og drepfyndna verk fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir. Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið alfarið á sinni eigin reynslu, draga ekkert undan en ljúga helling.Það má segja að þetta sé olnboga-verk, því áhorfendur munu skjóta olnboga í sessunautana ótt og títt og hvísla: svona ert þú! Þær Salka Sól, Selma og Björk leika öll aðalhlutverk, aukahlutverk, kvíðaverk og smáhlutverk í sýningunni auk þess að flytja snilldarlega helling af frábærri, nýrri tónlist eftir þær sjálfar og Karl Olgeirsson.

Leikstjórn er í höndum fyndnasta  leikstjóra landsins Ágústu Skúladóttur. Þórunn María Jónsdóttir sér um búninga og leikmynd og Freyr Vilhjálmsson sér um ljósahönnun.

18 ára aldurstakmark



Sviðið, Selfossi