Tix.is

Um viðburðinn

Óskar Pétursson Álftagerðisbróðir á að baki langan og farsælan feril sem söngvari og skemmtikraftur. Bæði einn og óstuddur og einnig sem órjúfanlegur hluti hinna goðsagnarkenndu Álftagerðisbræðra.

Það verður enginn svikinn af glæsilegum tónleikum Óskars, en hann kemur fram í Hofi  þann 14. október nk.

Óskar verður ekki einn á ferð því bræður hans frá Álftagerði, þeir Pétur og Gísli, munu að ekki láta sitt eftir liggja og mæta í öllu sínu veldi.

Auk bræðranna mun Guðrún Gunnarsdóttir láta ljós sitt skína að ógleymdu bestu sonum Skagafjarðar í Karlakórnum Heimi undir styrkri stjórn Stefáns R. Gíslasonar.

„Óskar var bæjarlistarmaður Akureyrar árið 2002 og nú 21 ári síðar hlýtur hann heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs fyrir farsælan feril og ríkulegt framlag til menningarlífs á Akureyri“

Hljómsveit undir stjórn Valmar Väljaots

Söngur:
Óskar Pétursson

Guðrún Gunnarsdóttir

Álftagerðisbræðurnir
Pétur Pétursson
Gísli Pétursson

Karlakórinn Heimir
Ívar Helgason

Hljóðmeistari: Gunnar Sigurbjörns