Tix.is

Um viðburðinn

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna hina einu sönnu Bríeti á fjölskyldutónleikum
Allt í Blóma 30. júní næstkomandi.
Þann 30. júní mun söngkonan Bríet stíga á stokk ásamt þeim Magnúsi Jóhanni
hljómborðsspecialista og Bergi Einari trymbli. Bríeti þarf varla að kynna fyrir
landsmönnum, hún hefur verið áberandi undanfarin ár en segja má að plata
hennar Kveðja, Bríet sem kom út síðast liðið haust hafi slegið í gegn hjá þjóðinni
en platan vermdi um tíma öll toppsætin á spilunarlistum Spotify.
Einstakur viðburður fyrir fjölskylduna í alúðlegu umhverfi Lystigarðsins í
Hveragerði.

Forsölu tilboð 4000
Forsöluverð 4500
Við hurð 5500


Vert er að taka fram að Bríet hefur alltaf selt upp þegar hún kemur í Hveragerði.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17 og eru í klukkustund.
Hlökkum til að sjá ykkur á Allt í Blóma 2023