Tix.is

Um viðburðinn

Gereon Krahforst fæddist 1973 í Bonn og ólst upp á listrænu heimili. Eftir
alhliða tónlistarmenntun, útskrifaðist hann úr menntaskóla árið 1990. Hann
lagði stund á tónsmíðar, tónfræði, kirkjutónlist, píanó og orgelleik í Köln og
Frankfurt í tíu ár. Fyrstu orgelkennarar hans voru Markus Karas og sr. John
Birley og síðan nam hann hjá Clemens Ganz og Daniel Roth. Hann tók þátt í
fjölda meistaranámskeiða og stundaði einkanám hjá Marie-Claire Alain, Jon
Laukvik, Petr Eben, Wolfgang Seifen, Tomasz Adam Nowak, Guy Bovet og
Franz Lehrndorfer. Gereon Krahforst gegndi fjölda virtra starfa sem organisti
og tónlistarstjóri, sem hófst í Bonn (Kreuzbergkirche), Moenchengladbach,
Minden (dómkirkju) og Paderborn (dómkirkju), og árið 2004 hóf hann átta ára
starfsferil við kennslu í orgelleik og spuna við Tónlistarháskólann í Hannover.
Á þeim tímamótum flutti hann til bæjarins Marbella við Miðjarðarhafið á
Suður-Spáni (Andalúsíu) og starfaði sem organisti við Church of the
Immaculate Conception „Órgano del Sol mayor“. Á árunum 2012 til 2014 var
hann með mjög sértæka O -1B vegabréfsáritun fyrir listamenn sem sýna
óvenjulega hæfileika meðan hann starfaði sem organisti dómkirkjunnar og
aðstoðartólistarstjóri við basilíkuna í Saint Louis, Missouri (Bandaríkjunum).
Árið 2014 sneri hann aftur til heimalands síns og til starfa sem tónlistarstjóri í
St. Lutwinus kirkjunni í Mettlach (Saarland), þar sem hann var ábyrgur fyrir
sex kórum. Í apríl 2015 var hann kvaddur til að gegna núverandi starfi sínu
sem organisti og listrænn stjórnandi hinnar fjölsóttu alþjóðlegu
orgeltónleikahátíðar við hið fræga tólftu aldar klaustur, Maria Laach, einu
merkasta minnismerki Evrópu um hreina rómanska byggingarlist. Ennfremur
er hann listrænn stjórnandi barokkorgeltónleikarhátíðarinnar við
Kreuzbergkirche Bonn og við hið dýrmæta, sögulega Balthasar Koenig-orgel
(1714) í klausturkirkju heilags Leodegar í Niederehe (Eifel). Frá árinu 2017
hefur hann einnig starfað í nefnd fyrir alþjóðlegu orgelhátíðina í Rhineland-
Pfalz og sem framkvæmdastjóri skrifstofu menningar og
menntamálaráðuneytisins í Mainz. Árið 2018 varð hann forseti nefndar um
orgelhátíðina í Bonn og síðan 2019 er hann jafnframt organisti við sögufrægt
breskt orgel St. Castor kirkjunnar í Andernach. Sem tónskáld hefur Krahforst
samið fjölda verka fyrir píanó, orgel, söngrödd, kór, strengjakvartett og
hljómsveit.
Tónverk hans er að finna hjá bandarískum, þýskum og hollenskum útgáfum.
Hann samdi nýlega sína aðra orgelsinfóníu (fyrir 1-4 orgel) eftir pöntun frá
deild erkibiskupsdæmisins í Freiburg. Krahforst hefur hlotið margvíslegar
viðurkenningar fyrir listsköpun sína, sérstaklega fyrir spuna. Umfangsmikil
efnisskrá hans inniheldur heildarorgelverk Scheidt, Pachelbel, Muffat,
Couperin, Bruhns, Buxtehude, Bach, Mendelssohn, Schumann, Brahms,
Franck og Duruflé auk allra 10 orgelsinfónía Widors og allar 6 sinfóníur
Vierne. Hann hefur hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna í tónsmíðum, píanóleik

og orgelleik og komið fram í fjölmörgum dómkirkjum og tónleikasölum í
næstum öllum Evrópulöndum, Suður-Kóreu, Japan, Bandaríkjunum og
Kanada.
Krahforst hefur einnig verið dómari í alþjóðlegum orgelkeppnum og er hann
sérstaklega áhugasamur um samtímatónlist frá ólíkum löndum, til dæmis
Rami Bar-Niv (Ísrael).