Tix.is

Um viðburðinn

Inger-Lise Ulsrud er prófessor í orgelleik og spuna við tónlistarháskólann í Ósló og
organisti Uranienborgarkirkju. Hún hefur komið fram á tónleikum víða um heim,
hefur tekið þátt í fjölda orgelhátíða í Rússlandi og mörgum Evrópulöndum og haldið
fjölda meistaranámskeiða erlendis og í Noregi. Hún hefur komið fram í fjölda
sjónvarps- og útvarpsþátta og leikið á inn á geislaplötur. Inger-Lise var til nokkurra
ára yfirmaður kirkjutónlistardeildar tónlistarháskólans í Osló. Hún sat í nefndinni
fyrir útgáfu norsku sálmabókarinnar 2013. Hún hefur einnig verið í dómnefnd við
Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi, stjórnarmaður á Alþjóðlegu
kirkjutónlistarhátíðinni í Osló og Orgelhátíðinni í Osló. Árið 2018 kom út bók hennar
Organ Improvisation. Ulsrud situr reglulega í dómnefndum á alþjóðlegum
orgelkeppnum, síðast á The 2nd Nordic Organ Competition í Stavanger 2020. Hún
var listrænn stjórnandi alþjóðlegu orgelhátíðarinnar Bodø.