Tix.is

Um viðburðinn

Steinar Logi Helgason lærði á píanó í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Nýja
Tónlistarskólanum og í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann hóf nám í
Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2010 og kláraði þar kirkjuorganistapróf og lauk
síðar bakkalársgráðu úr Kirkjutónlistarbraut Listaháskóla íslands undir
handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Steinar Logi stundaði
meistaranám í ensemble conducting við Konunglegu tónlistarakademíuna í
Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan jólin 2020. Steinar hefur stjórnað fjölda
kóra og starfað sem organisti, píanisti og stjórnandi á mörgum vígstöðum.
Hann var tilnefndur ásamt Cantoque ensemble sem tónlistarhópur ársins í
flokki Sígildrar-og samtímatónlistar. Steinar Logi tók við stöðu kórstjóra
Hallgrímskirkju haustið 2021.

Hildigunnur Einarsdóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík
undir handleiðslu Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Signýjar Sæmundsdóttur
og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og Hollandi hjá Janet Williams og
Jóni Þorsteinssyni. Hildigunnur hefur einnig lokið B.A. prófi í skapandi
tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands hvar hún sótti söngtíma hjá Hlín
Pétursdóttur Behrens. Hildigunnur stjórnar Árkórnum í Reykjavík og
Kvennakórnum Kötlu ásamt Lilju Dögg Gunnarsdóttur. Hildigunnur kennir
einnig söng við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann
Domus Vox.
Hildigunnur hefur verið áberandi í kirkjutónlistarsenunni og sungið
einsöngshlutverkin m.a. Messías og Judas Maccabeus eftir Händel,
Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratoríuna eftir Bach og
Guðbrandsmessu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Hildigunnur hefur einnig
sungið einsöng m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Barokksveitinni Brák og
Kammersveit Reykjavíkur og frumflutt fjölda verka m.a. eftir Hreiðar Inga
Þorsteinsson, Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og Kolbein Bjarnason.
Hildigunnur var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2014 fyrir túlkun
sína á sönglögum Karls O. Runólfssonar með kammerhópnum Kúbus og
hlaut nýlega Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins í sígildri og
samtímatónlist.