Tix.is

Um viðburðinn

Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju í Reykjavík. Hann kennir
jafnframt orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands.


Björn Steinar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í
Reykjavík. Meðal kennara hans þar voru Haukur Guðlaugsson og Fríða Lárusdóttir. Framhaldsnám
stundaði hann á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de
Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í
orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986. Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar
sem hann vann að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna.


Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum norðurlöndunum, í Evrópu
og norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute of Music Orchestra. Hann
hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar hjá
Skálholtsútgáfunni og orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS sem hlaut einróma lof
gagnrýnenda.
Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn
bæjarlistamaður Akureyrar 2002. Listamannalaun 1999 og 2015. Í ár kemur Björn Steinar fram á
tónleikum á Íslandi, í Danmörku og Þýskalandi.


Efnisskrá:
Max Reger Introduction und passacaglia,WoO IV/6, í d-moll
(1873–1916) Romanze WoO IV/11, í a-moll


Páll Ísólfsson Three Piano Pieces
(1893–1974) transcription; Björn Steinar Sólbergsson

Burlesca
Intermezzo
Capriccio

Alexandre Guilmant Première Sonate op. 42, í d-moll
(1837–1911) Introduction et allegro

Pastorale
Final