Tix.is

Um viðburðinn

Nanna, söngkona Of Monsters and Men verður með fyrstu sólótónleika sína á Íslandi í Bæjarbíó Hafnarfirði þann 12. júlí næstkomandi og eru þeir hluti af tónlistarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar. 

Tónleikarnir eru þeir fyrstu í tónleikaröð sem framundan er í Bandaríkjunum í júlí og ágúst og svo koma þau aftur heim í nóvember og spila á Iceland Airwaves. Í bandaríkjunum koma þau meðal annars fram á Newport Folk Festival og Outside Lands. 

Nanna kemur fram ásamt hljómsveit sinni sem skipuð er frábæru tónlistarfólki.
Hljómsveit:
Bjarni Þór Jensson - gítar/söngur
Magnús Trygvason Eliassen - trommur/slagverk
Rakel Sigurðardóttir - söngur/fiðla
Tómas Jónsson - hljómborð

Það er mikill heiður að bjóða Nönnu og hljómsveit hennar velkomna í Bæjarbíó með sína fyrstu sólótónleika


Hjarta Hafnarfjarðar