Tix.is

Um viðburðinn

Mozart við júnísól

Tónleikar Camerarctica á Björtum dögum – Menningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar sunnudaginn 11. júní í Fríkirkjunni Hafnarfirði.
Það eru klassískir sumartónar sem hljóma á þessum tónleikunum Camerarctica á bjartasta tíma ársins. Á efnisskránni er Kvartett op. 4 í c - moll fyrir klarinettu, fiðlu, víólu og selló eftir samtímamann Mozarts hinn sænsk-finnska Bernhard Henrik Crusell og einn af hinum margrómuðu strengjakvintettum Wolgangs Amadeus Mozarts. Kvintettinn sem fluttur verður á tónleikunum er í g - moll KV 516 og hefur tvær fiðlur, tvær víólur og selló innanborðs.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir kl.21.00. Aðgangseyrir er kr.3000. Miðarsala á Tix.is og við innganginn.

https://tix.is/is/event/15503/mozart-vi-junisol-

Ókeypis aðgangur fyrir nemendur !

Flytjendur á tónleikunum Camerarctica eru:
Ármann Helgason klarinettuleikari
Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari
Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari
Svava Bernharðsdóttir víóluleikari
Guðrún Þórarinsdóttir víóluleikari
Sigurður Halldórsson sellóleikari