Tix.is

Um viðburðinn

X977, ásamt KKÍ, Subway og Redbull halda Streetball mót laugardaginn 10. júni á Klambratúni, heimili götuboltans á Íslandi!
Spilað verður 3 á 3 en hvert lið má innihalda 4 leikmenn. Ath að úrvals- og fyrstudeildarleikmenn, og að gefnu tilefni College players, eru ekki gjaldgengir í mótið, ekki nema í brekkuna.
Mótið hefst kl 11.00, spilað er í riðlum og fara tvö efstu liðin áfram í útsláttarkeppni.
Það kostar 12.000kr á fyrir lið og fara öll þátttökugjöldin í verðlaunafé sem þrjú efstu sætin ásamt veglegum aukaverðlaunum fyrir flottasta liðið, tilþrifin og háttvísi frá samstarfsaðilum.

1 sætið – 60% af þátttökugjöldum
2 sætið – 30% af þátttökugjöldum
3 sætið – 10% af þátttökugjöldum
Aukaverðlaun : Flottasta liðið, Tilþrif, Háttvísi

Sá Raunverulegi, Tommi Steindórs, ásamt aðstoðarmanni verða á staðnum og passa uppá skrefin og tvígripin og krýna loks Íslandsmeistara götubolta 2023.

Alvöru götuboltastemming verður á túninu, komdu og slammaðu með okkur á Klambratúni 10. júní á Íslandsmeistaramóti X977 í götubolta 2023.

X977 – KKÍ – Subway – Red Bull