Tix.is

Um viðburðinn

Rocky Horror - Frægasti kynuslasöngleikur heims ratar nú á fjalir Þjóðleikhússins í uppsetningu Leikfélags Vestmannaeyja. Það var fyrir 50 árum sem Rocky Horror var fyrst sett upp í Royal Court leikhúsinu í West End hverfi Lundúnaborgar. Síðan þá hefur söngleikurinn verið settur upp ótal sinnum, verið kvikmyndaður og nú síðast var uppsetning Leikfélags Vestmannaeyja valin áhugaverðasta áhugamannaleiksýningin árið 2023.

Við stígum með þeim Brad og Janet inn í kastala geimverunnar Frank N´Furters á afar sérstöku kvöldi. Þar kynnumst við mörgum kynlegum kvistum, upplifum kyntjáningu, kynhneigðir og kynusla fara upp og niður, út og suður, beygjast og bogna, teygjast og togna. Mörk eru könnuð og óravíddir mannlegs eðlis skoðuð. Allt í gegnum söng, dans, leik og rokk og ról.

Áhorfendur eru hvattir að taka þátt, syngja með og leyfa kynuslanum að streyma um æðar sér.

Höfundur: Richard O´Brien Þýðandi: Veturliði Guðnason Leikstóri: Árni Grétar Jóhannsson

Hljómsveit: Molda ásamt vel völdum listamönnum þeim Birgi Nielsen á trommur, Sigurmundi Einarssyni á saxófón , Kristni Guðmundssyni á gítar og Páli Viðari Kristinssyni á hljómborð