Tix.is

  • 08. okt. - kl. 20:00
Miðaverð:7.990 - 14.990 kr.
Um viðburðinn

Eivør Pálsdóttir heldur tónleika í Hörpu 8. október 2023.

Eivør er Íslendingum góðkunn en hún hefur fangað hug og hjörtu Íslendinga frá því hún steig á sjónarsviðið við aldarmótin. Eivør, sem er þekkt fyrir einstaka og kraftmikla rödd og frumlega samtvinningu ólíkra tónlistarstíla, hefur byggt upp dyggan aðdáendahóp á Íslandi og um allan heim..

Glæsilegur ferill Eivørar samanstendur meðal annars af ótal plötum, smáskífum, virtum viðurkenningum og verðlaunum, þar á meðal Íslensk tónlistarverðlaun og árið 2022 hlaut hún tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. Þegar hún stígur á svið í Hörpu október geta áhorfendur búist við stórkostlegri tónlistarupplifun þar sem Eivør flytur alla sína helstu smelli studd af stjörnusveit tónlistarmanna á heimsmælikvarða.

VERÐSVÆÐIN:
- Úrvalssæti         14.990 kr.        (fjólublátt á mynd)
- Verðsvæði A           12.990 kr.       (rautt á mynd)
- Verðsvæði B           11.990 kr.       (blátt á mynd)
- Verðsvæði C          9.990 kr.         (grænt á mynd)
- Verðsvæði D          7.990 kr.         (gult á mynd)

Mynd af sal hér.

Umsjón: Sena Live